Hverfið mitt

Hverfið mitt er lýðræðisverkefni hjá Reykjavíkurborg þar sem íbúar senda inn hugmyndir að verkefnum sem þau vilja sjá verða að veruleika í sínu hverfi. Kosning í verkefninu Hverfið mitt fór fram frá 14. til 28. september. Niðurstöður kosninga í hverju hverfi munu birtast hér.

Tímalína verkefnisins

1. Söfnun hugmynda og áhugakönnun
Lokið
Tímabil: 22. september 2022 - 27. október 2022
Hugmyndasöfnun fyrir Hverfið mitt 2022-2023 fór fram á tímabilinu 22. september til 27. október 2022. Hér á vefnum er hægt að skoða þær hugmyndir sem bárust í hugmyndasöfnuninni.
2. Yfirferð hugmynda
Lokið
Tímabil: 1. nóvember 2022 - 30. mars 2023
Eftir hugmyndasöfnun er farið yfir innsendar hugmyndir. Nefnd starfsfólks hjá borginni fer yfir allar hugmyndirnar og metur hvort þær uppfylla reglur verkefnisins. Þar sem við á reynir starfsfólk verkefnisins að kanna hvort hægt sé að útfæra hugmyndir þannig að þær falli að reglum verkefnisins og hægt verði að kjósa um þær í kosningunum.
3. Valkostum stillt upp
Lokið
Tímabil: 3. apríl 2023 - 31. ágúst 2023
Við uppstillingu á samþykktra hugmynda á kjörseðil fara í hverju hverfi 15 af vinsælustu hugmyndunum sjálfkrafa í kosningu. Auk þess velur íbúaráð hverfisins 10 hugmyndir til viðbótar. Þegar hugmyndirnar sem kjósa á um hafa verið valdar er unnin fyrir þær frumhönnun, verklýsing og kostnaðarmat.
4. Rafræn kosning
Lokið
Tímabil: 14. september 2023 - 28. september 2023
Sjálf kosningin fer fram á hverfidmitt.is og stendur valið á milli 25 hugmynda í hverju hverfi. Til þess að greiða atvæði þurfa notendur að auðkenna sig með öruggum hætti (rafrænum skilríkjum eða Íslykli). Þátttaka er opin öllum sem hafa lögheimili í Reykjavík og eru orðin 15 ára á árinu sem kosningin fer fram.
5. Framkvæmdir
Í gangi
Tímabil: 2. október 2023 - 30. ágúst 2024
Eftir kosningar eru hugmyndirnar sem náðu kjöri fullhannaðar og framkvæmdir undirbúnar. Höfundum hugmynda er boðið á samráðsfundi með verkefnastjórn þar sem þeir geta útskýrt hugmyndir sínar nánar. Leitast er eftir samráði við nærsamfélagið, hugmyndasmiði og íbúaráð um framkvæmdir, sérstaklega í þeim tilvikum þar sem þörf reynist á að breyta hugmyndum eða staðsetningu þeirra.