Hlíðar

Gróið hverfi þar sem njóta má útivistar á Klambratúni og Öskjuhlíð auk þess sem söfn eru í göngufæri. Meðal kennileita hverfisins eru Perlan, Klambratún og Sjómannaskólinn. Í hverfinu má finna eitt helsta útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins, Öskjuhlíðina. Klambratún er með stærri almenningsgörðum í Reykjavík og setur mikinn svip á Hlíðahverfið.

Hvaða skilyrði þarf hugmyndin að uppfylla?

Meta þarf hvort hugmyndir falli að skilyrðum verkefnisins og séu framkvæmanlegar.
  • Vera nýframkvæmd – viðhalds- og öryggisverkefnum er vísað annað
  • Kosta ekki meira fjármagn en hverfinu er úthlutað
  • Vera framkvæmanlegar innan tímaramma verkefnisins - þ.e. fyrir árslok 2024
  • Falla að skipulagi og yfirlýstri stefnumótun Reykjavíkurborgar
  • Krefjast ekki verulegs rekstrarkostnaðar á borð við kostnað vegna starfsmannahalds eða vöktunar með öryggismyndavélum
  • Vera á verksviði borgarinnar
  • Vera á opnu svæði í borgarlandinu
  • Vera í samræmi við lög og reglur

Leita að hugmyndum

Hér getur þú séð þær hugmyndir sem hlutu kosningu í þínu hverfi.